Breskur eldri karlmaður var í dag dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni, stjúpdætrum og dótturdóttur. Maðurinn braut gegn einni stúlknanna á yfir níu ára tímabili, frá því að hún var sjö ára. Samtals ná brot mannsins yfir þrjátíu ára tímabil.