Framkvæmdastjóri Rauða kross Svíþjóðar segir að ísraelskir hermenn hafi vísvitandi skotið á sjúkrabíla í átökunum sem hafa geisað á svæðinu undanfarnar vikur.
Christer Zettergren, segir að sjö sjúkrabílar á vegum Rauða hálfmánans á Gaza, hafi skemmst í síðustu viku. Hann sagði við blaðamenn í Stokkhólmi í dag að ísraelskir hermenn hafi skotið á sjúkrabílana af ásettu ráði.
Zettergren mun ferðast til Mið-Austurlanda á morgun til að gefa Rauða hálfmánanum 10 sjúkrabíla. Sænski Rauði krossinn og sjónvarpsstöðin TV4 söfnuðu fénu til að kaupa bílana.