Ákærður fyrir kynferðisglæpi gagnvart börnum

Kanadískur karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart tveimur stúlkum, 10 og 12 ára, í Kambódíu. Á hann yfir höfði sér allt að þrettán ára fangelsi ef hann verður fundinn sekur um glæpinn.

Daniel Lavigne, 68 ára, frá Quebec í Kanada var í dag ákærður fyrir kynmök og ósæmilega hegðun gagnvart börnum. Lögregla handtók hann á umferðarmiðstöð í bænum Sihanoukville, sem er í 185 km fjarlægð frá Phnom Penh.Var hann að bíða eftir langferðabifreið til Phnom Penh ásamt stúlkunum tveimur. Lavigne neitar sakagiftum og segist hafa komið fram við stúlkurnar líkt og þær væru ættleiddar dætur hans. Hins vegar greindu stúlkurnar lögreglu frá því að hann hefði misnotað þær kynferðislega á gistihúsi þar sem hann bjó.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert