Fréttamaður særðist á Gaza þegar hann reyndi að komast út úr byggingu sem Ísraelsher gerði árás á í dag. Að minnsta kosti tveir særðust í árásinni og þurftu þeir að leita sér læknisaðstoðar.
Skotið var á byggingu þar sem Reuters-fréttastofan og aðrar fréttastofur hafa aðsetur. Allir sem voru í húsinu neyddust til að yfirgefa það og þá var tímabundið rof á fréttaumfjöllun frá átökunum.