Hreyfill fannst í Hudson

Vinstri hreyfill flugvélarinnar sem brotlenti í Hudson-ánni í New York fyrir rúmri viku var dreginn upp úr ánni í gær. Hreyfillinn hafði rifnað af vélinni og sokkið til botns í ánni þar sem kafarar fundu hann. Rannsóknir þykja styðja að stór hópur fugla hafi sogast inn í hreyfla vélarinnar og valdið slysinu. Enginn fórst í slysinu eftir hetjulega lendingu flugmanns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert