Heilt knattspyrnulið lést í bílslysi

Lögregla í Nígeríu segir, að 15 knattspyrnumenn hafi látið lífið þegar rúta sem var að flytja knattspyrnuliðið, lenti í árekstri við gripaflutningabíl. Sjö til viðbótar voru fluttir slasaðir á sjúkrahús.

Slysið varð skammt frá höfuðborginni Abuja. Tólf leikmenn og þrír þjálfarar létu lífið samstundis í slysinu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert