Skaut konu sína og fimm börn

Bandarískur karlmaður skaut eiginkonu sína og fimm  ung börn þeirra til bana í úthverfi Los Angeles og skaut síðan sjálfan sig til bana. Að sögn lögreglu fundust líkin í íbúð fjölskyldunnar í morgun.  

Talsmaður lögreglunnar sagði, að haft hefði verið samband frá sjónvarpsstöð í bænum, sem sagðist hafa fengið símtal og símbréf frá manni, sem sagðist ætla að myrða fjölskyldu sína og sjálfan sig. Símbréfið benti til þess, að maðurinn hefði nýlega misst vinnuna.  

Börnin, sem fundust látin voru átta ára gömul stúlka, fimm ára gamlar tvíburasystur og tveggja ára tvíburabræður.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert