Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) vilja að 613 milljónum dollara, tæplega 72 milljörðum íslenskra króna, verði varið til að hjálpa íbúum í neyð á Gaza-svæðinu. Þeta kom fram í máli Ban Ki-Moon, aðalritara SÞ, á heimsviðskiptaráðstefnunni í Davos í Sviss.
Hann sagði að peningarnir yrðu notaðir til að hjálpa fólki að takast á við einhverjar af afleiðingum harðræðis Ísraelsmanna. Ban Ki-Moon heimsótti Gaza svæðið nýlega og lét hafa eftir sér að þar væri augljóslega aðstoðar þörf og hefði hann verið djúpt snortinn af förinni.
Upphæðin yrði notuð til að greiða fyrir aðstoð SÞ og annarra hjálparsamtaka næstu sex til níu mánuðina og fæli í sér allt frá læknisaðstoð til hreins drykkjarvatns.