Gardermoen flugvellinum við Ósló hefur verið lokað vegna snjókomu og hálku á flugbrautum. Var vellinum lokað rétt fyrir klukkan 19 að norskum tíma og hefur öllum flugvélum sem áttu að lenda á vellinum verið vísað á aðra flugvelli. Alls áttu 26 flugvélar að fara frá vellinum í kvöld og 17 að lenda.
Upplýsingafulltrúi flugvallarins, Jo Kobro, segir í samtali við Aftenposten.no að ekki hafi verið hægt annað en að loka vellinum vegna snjókomunnar enda ekki þorandi að láta flugvélar lenda þar við þær aðstæður sem nú eru á flugbrautum vallarins. Ekki liggur fyrir hvenær verður hægt að opna flugvöllinn á ný en mögulegt sé að það verði ekki fyrr en í fyrramálið.