Þrettán ára gömul stúlka frá Als í Danmörku á von á barni eftir tvo mánuði. Faðirinn er einnig 13 ára en hann var 12 ára þegar barnið kom undir í sumar.
Danska sjónvarpsstöðin TV2 fjallaði um málið í kvöld. Drengurinn og stúlkan voru saman í 7. bekk þar til drengurinn skipti nýlega um skóla. Móðirin á von á sér í apríl og hún á að fermast í maí.
TV2 ræddi við drenginn og foreldra hans, sem sögðu að þeim ætti þetta afar leitt. Drengurinn og stúlkan hafa engin samskipti nú og sagði drengurinn við TV 2, að stúlkan svaraði ekki lengur SMS skeytum frá honum.