Ósátt við einhenta sjónvarpskonu

Cerrie Burnell.
Cerrie Burnell.

Foreldrar hafa gagnrýnt þáttastjórnanda á breskri barnasjónvarpsstöð fyrir að hræða börnin en þáttastjórnandinn er einhentur.

Cerrie Burnell er kynnir á sjónvarpsstöðinni CBeebies og þykir hún hæfileikarík leikkona. BBC hefur hinsvegar borist níu opinberar kvartanir um störf hennar. Allt eru það foreldrar sem segja hina einhentu Burnell hræða börn sín. Ekki er vitað hvort eða hvernig BBC bregðist við þessum kvörtunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert