Bæjarstjóri Haarlemmermeersýslu í Hollandi sagði í dag að 9 hefðu látið lífið og yfir 50 slasast þegar flugvél frá Turkish Airlines brotlenti skammt frá Schipholflugvelli í morgun.
Alls voru 127 farþegar í vélinni, þar af eitt barn, og sjö í áhöfn um borð í vélinni. Vélin hrapaði við hraðbraut sem er rétt hjá flugvellinum. Hún skemmdist mjög mikið. Hún var að koma frá Istanbúl og er af Boeing 737-800 gerð.