Lögreglan í Kaupmannahöfn er með mikinn viðbúnað í borginni um helgina, einkum þó á Norðurbrú þar sem skotárásir hafa verið nokkuð tíðar að undanförnu en það er talið tengjst átökum glæpaflokka. Í gærkvöldi var 25 ára gamalli Írani skotinn til bana í hverfinu.
Settur hefur á stofn sérstakur hópur innan lögreglunnar sem berst gegn glæpaflokkum. Haft er eftir Henrik Svindt, leiðtoga aðgerðahópsins, að lögreglan sé sýnileg á þeim stöðum þar sem vitað er að glæpaflokkar halda sig.
Maðurinn, sem var myrtur í gærkvöldi, var skotinn fjórum skotum í bakið þar sem hann sat í bíl við Mjølnerparken á Norðurbrú. Ekki er vitað til að maðurinn hafi tengst skipulagðri glæpastarfsemi og heldur ekki maður, sem var með honum í bílnum. Lögregla telur samt að málið tengist uppgjöri mótorhjólagengja og glæpahópa innflytjenda. Vitni segja, að maður, sem sást hlaupa frá morðstaðnum, hafi haft danskt yfirbragð.