Ráðist á hermenn á Norður-Írlandi

Breskir hermenn
Breskir hermenn AP

Tveir hermenn létust í skotárás sem gerð var á herstöð Breta á Norður-Írlandi í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu særðust fjórir alvarlega í árásinni, tveir þeirra eru einnig hermenn. Árásin var gerð á höfuðstöðvar breska hersins í Masserene, norðvestur af Belfast.

Fregnir hafa borist af því að sést hafi til manns sem skaut 30-40 skotum á búðir hermannanna. Aðrar fregnir herma að byssumaðurinn hafi skotið á herbúðirnar úr bíl.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert