Í felum í íbúð í mörg ár

Serbneski stríðsglæpamaðurinn Ratko Mladic, sem stjórnaði serbneskum hersveitum í Bosníustríðinu frá 1992 til 1995, hefur verið í felum í íbúð í Belgrad í mörg ár, að sögn norsku fréttastofunnar NTB sem vitnar í serbneska blaðið Press.

Mladic er sagður vera í sambandi við eina manneskju sem færir honum mat og lyf í íbúðina. Samkvæmt Press hefur lögreglan hafið ítarlega rannsókn vegna upplýsinganna.

Alþjóðasakamáladómstóllinn í Haag hefur ákært Mladic fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð á meðal annars 8.000 múslímum í Srebrenica.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert