Nýtt fíkniefni, mefedron er sagt er líkjast krakki og er mjög sterkt, breiðist nú út í Svíþjóð, að sögn Svenska Dagbladet. Segjast yfirmenn fíkniefnavarna aldrei hafa séð nýtt efni hasla sér völl jafn hratt.
Athygli vekur að efnið, sem er hvítt eða ljósgult duft, var ekki sett á lista yfir fíkniefni fyrr en sl. sumar eða ári eftir að fyrst var farið að fjalla um það í Svíþjóð. Voru þá starfsmenn í heilbrigðiskerfinu farnir að spyrjast fyrir hjá upplýsingasmiðstöð fikniefnavarna vegna skjólstæðinga í vímu og vildu fá að vita hvernig ætti að meðhöndla þá.
Virka efnið í mefedron nefnist metylmetkatinon og finnst svipað efni einnig í fíkniefni sem mikið er notað í austanverðri Afríku og nefnist qat.