Á sama tíma og Barack Obama Bandaríkjaforseti reynir að draga athyglina að viðleitni stjórnar sinnar til að reisa við efnahagslífið beinist athygli fjölmiðla einnig að deilum um aukagreiðslur til starfsmanna tryggingarisans AIG og vangaveltna um hæfni Tim Geitners fjármálaráðherra.
Fylgi hans hefur dalað lítillega að undanförnu og kunna afar óheppileg ummæli um fatlaða íþróttamenn að ganga frekar á stuðninginn.