Kínverskir lögreglumenn beita Tíbeta miklu harðræði og berja jafnvel handtekið fólk með kylfum að tilefnislausu, að því er fram kemur á þessu myndbandi. Viðkvæmir eru varaðir við myndunum.
Á myndunum má sjá kínverska hermenn í Lhasa, höfuðborg Tíbets, sem ætlað er að halda aga eftir óeirðirnar í mars í fyrra.
Tíbetar sem eru í útlegð hafa birt myndirnar sem þeir segja sýna fram á grimmd Kínverja.