New York-búar leita allra leiða til að spara í kreppunni. Nýjasta aðferðin er að læra að þekkja matjurtir sem taka má til nytja úr almenningsgarðinum fræga Central Park.
Áhugafólk um sjálfbæra lífshætti sýnir leiðöngrum um garðinn sífellt meiri áhuga, á sama tíma og verslanir með ódýrar vörur blómstra á Manhattan.