Tuttugu og níu ára Dani, sem í síðustu viku var stunginn í lungu og hjarta í rifrildi í umferðinni við annan ökumann og farþega hans, lést síðdegis í dag, að sögn lögreglunnar á Fjóni.
Samkvæmt frásögn lögreglunnar hófst rifrildið þegar ökumennirnir, sem þekktust, stöðvuðu bíla sína hlið við hlið við gatnamót. Ökumennirnir keyrðu síðan á bílastæði og þar lauk rifrildinu með hnífstunguárás.
Árásarmennirnir eru nú í gæsluvarðhaldi.