Einn mótmælandi hefur látið lífið í London en þar hafa öflug mótmæli átt sér stað vegna G20 fundar helstu efnahagsvelda heims. Maðurinn fannst eftir að hann hafði misst meðvitund í búðum mótmælenda nálægt Breska seðlabankanum. Hann var færður á sjúkrahús og úrskurðaður látinn skömmu síðar.
Ekki er enn vitað af hverju maðurinn lést en vitað er að nokkrir mótmælendur höfðu særst í átökum við lögreglu.