Sjóræningjar frá Sómalíu, sem hafa bandaríska skipstjórann Richard Phillips í haldi, vara við því að verði reynt að bjarga honum geti það endað ,,með skelfingu". Fjórir menn eru með Phillips í haldi á litlum, vélarvana björgunarbáti nokkur hundruð km undan strönd landsins.
Bandarískt herskip, USS Bainbridge, er statt rétt hjá bátnum og reyndi Phillips á föstudag að flýja á sundi en tilraunin mistókst. Hann er skipstjóri á flutningaskipinu Maersk Alabama sem ræningjarnir reyndu að ná á miðvikudag. Áhöfninni tókst þó að yfirbuga ræningjana og flýðu þeir á björgunarbátnum en höfðu Phillips með sér sem gísl.
Ræningjarnir sögðust í morgun vona að þeim tækist að koma Phillips yfir í stærri bát. Fullyrt er að þeir krefjist tveggja milljóna dollara í lausnargjald fyrir manninn.