Barack Obama Bandaríkjaforseti boðar „nýtt upphaf“ í samskiptunum við Kúbverja og samvinnu við Ameríkuríki á jafningjagrundvelli.
Obama lét þessi orð falla á fundi með leiðtogum Ameríkuríkja í Trinidad og Tobago í gær en Kúbverjar voru þar ekki þátttakendur.
Áður hafði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lýst því yfir að Kúbustefnan hefði mistekist og að leita þyrfti nýrra leiða í samskiptum ríkjanna.
„Ég geri mér grein fyrir því að löng ferð er fyrir höndum til að brúa áratuga vantraust,“ sagði Obama, sem taldi þegar hægt að stíga mikilvæg skref í átt að nýju upphafi.