Bandaríska lögreglan telur að David Kellermann, starfandi fjármálastjóri bandaríska íbúðalánasjóðsins Freddie Mac hafi svipt sig lífi á heimili sínu. Eiginkona hans lét lögreglu vita.
Kellermann hafði starfað fyrir sjóðinn í 16 ár en hann tók við stöðu fjármálastjóra í haust, þegar staða sjóðsins var skelfileg.
Þannig kom það fram í uppgjöri sjóðsins í mars sl. að tap sjóðsins á árinu 2008 væri ríflega 6.500 milljarðar króna.
Var þá einnig greint frá því að sjóðurinn hefði alls beðið ríkisstjórnina um rúmlega 4.000 milljarða króna aðstoð.