Framkvæmdir eru hafnar við byggingu 60 nýrra íbúða í gyðingahverfinu Austur-Talpiot í Austur-Jerúsalem. Ísraelsku mannréttindasamtökin Peace Now segja að framkvæmdir hafi hafist á svæðinu fyrir tveimur mánuðum og að til standi að hverfið verði byggt bókstafstrúuðum gyðingum. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Talsmaður Peace Now segir nýbyggingunum greinilega vera ætlað að aðskilja hverfi Palestínumanna í Austur-Jerúsalem frá Vesturbakkanum til að grafa undan kröfum Palestínumanna um að Austur-Jerúsalem fylgi Vesturbakkanum komi til stofnunar sjálfstæðs ríkis Palestínumanna.
Hverfið un standa á svæði sem skilgreit er af alþjóðasamfélaginu sem hernumið land en bygging hernámsaðila á slíkum svæðum er ólögleg samkvæmt alþjóðalögum.
Ísraelar líta hins vegar svo á að um yfirráðsvæði þeirra sé að ræða þar sem þeir hafi innlimað Jerúsalemsvæðið í ríki sitt. Því segja yfirvöld þar að fyrri samningar Ísraela um frystingu uppbygginga landnemabyggða eigi ekki við um Jerúsalemsvæðið.
Ísraelar náðu austurhluta Jerúsalem og Vesturbakkanum á sitt vald árið 1967.