Stærsti kór sögunnar var myndaður í indversku borginni Hyderabad á sunnudag og voru þátttakendur 160.000. Sungnir voru í um 40 mínútur sálmar eftir tónskáldið Annamacharya á hátíð til að minnast þess að liðin voru 600 ár frá fæðingu hans.
Gamla metið átti Wroclaw í Póllandi en árið 1937, þá sungu 60,000 saman. Nýja metið verður skráð í heimsmetabók Guinness.