Dýragarðurinn í Næstved í Danmörku verður lokaður út vikuna vegna sjálfsvígs, sem þar var framið aðfaranótt mánudags. Fyrrum starfsmaður dýragarðsins læsti sig þá inni í búri Bengaltígrisdýranna og kveikti í hálmi í búrinu. Síðan opnaði hann lúgur og hleypti dýrunum að sér.
Fram kemur á fréttavef Berlingske Tidende, að maðurinn lést af reykeitrun og tígrisdýrin rifu síðan lík hans í sig.
Svo virðist sem maðurinn, sem þjáðist af geðrænum sjúkdómi, hafi stolið lyklum að tígrisdýrabúrninu á skrifstofu forstjórans.
Starfsmönnum dýragarðsins verður boðin áfallahjálp í dag.