Þriggja ára gömul stúlka í Kalíforníu skaut 2 ára gamlan bróður sinn til bana í vikunni. Lögregla segir, að börnin hafi fundið hlaðna skammbyssu á heimili sínu og verið að leika sér með hana þegar skot hljóp úr henni.
Talsmaðuri lögreglunnar í Bakersfield, um 177 km norður af Los Angeles, segir að þetta hafi gerst síðdegis á miðvikudag. Stúlkan fann skammbyssuna undir rúmi foreldra sinna. Skot hljóp úr byssunni í brjóst drengsins. Hann var fluttur á sjúkrahús en lést þar af sárum sínum.
Lögregla segir, að móðir barnanna hafi verið heima þegar þetta gerðist en í öðrum hluta hússins. Faðirinn var í vinnu.