Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segir afsögn ekki hvarfla að sér en orðrómur um samband hans við 18 ára gamla fyrirsætu hefur valdið fjaðrafoki á Ítalíu. „Það hefur ekki hvarflað að mér að hætta, Ítalir hafa falið mér ábyrgð og ég verða að leiða stjórnina áfram,“ segir Berlusconi.
Berlusconi hafnar einnig möguleikanum á kosningum og segir slíkar hugmyndir pólitíska draumóra. Forsætisráðherrann, sem er 72ja ára, hefur verið miðdepill fjölmiðlafárs vegna sagna af sambandi hans við unglinginn Noemi Letizia, en hún kemur við sögu í skilnaðardrama Silvios og eiginkonu hans. Berlusconi hefur sagst hafa hitt Letiziu í gegnum foreldra hennar sem hann hafi þekkt í mörg ár. Fyrrverandi kærasti stúlkunnar segir þó að Berlusconi hafi haft beint samband við hana, og í fyrsta sinn á síðasta ári.
Berlusconi, sem sjálfur er eigandi fjölmiðla í landinu, segist skotmark erlendra fjölmiðla og fjölmiðlakóngsins Rupert Murdochs, sem einnig á fjölmiðla á Ítalíu.
Ítalska stjórnarandstaðan hefur ekki farið fram á afsögn Berlusconis en hefur óskað eftir nánari útskýringum hans.