Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sagði í kvöld að búast mætti við því að atvinnuleysi í Bandaríkjunum fari í 10% á þessu ári því fyrirtæki séu enn að fækka starfmönnum til að mæta fjármálakreppunni.
Obama var í viðtali á Bloomberg sjónvarpsstöðinni og þegar hann var spurður hvort hann teldi, að atvinnuleysið, sem nú mælist 9,4%, muni fara yfir 10%, svaraði hann „já". Hann svaraði einnig játandi þegar hann var spurður hvort það myndi gerast á þessu ári.