Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, er nú sakaður um að hafa ráðið svonefndar fylgdarkonur til að vera í samkvæmum á heimili hans.
Myndir af forsætisráðráðherranum ásamt ljóshærðri konu prýddu forsíður margra ítalskra blaða í dag en konan segist hafa þegið greiðslur fyrir að mæta í samkvæmi á heimili Berlusconis og hafa þar ofan af fyrir karlkyns gestum.
Berlusconi hefur átt erfitt uppdráttar vegna ýmissa hneykslismála. Hann sagði í dag að þessar nýju ásakanir væru fáránlegar.