Flugstjóri farþegaþotu bandaríska flugfélagsins Continental Airlines lést meðan á flugi stóð frá Brussel í Belgíu til New York í Bandaríkjunum. Búist er við að flugvélin lendi á Newark flugvelli í New Jersey innan skamms.
Breska ríkisútvarpið BBC segir, að tveir aðstoðarflugmenn séu við stjórnvölinn.