Omar Hashi Aden, innanríkisráðherra Sómalíu, lét lífið í sprengjutilræði á hóteli í Beledweyne norður af Mogadishu höfuðborg landsins í morgun. Sómalskir sendiherrar eru einnig sagðir hafa látið lífið í tilræðinu. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Tíu létu lífið í sprengjutilræði í mosku í Mogadishu í gær.