Bólivísk sjónvarpsstöð birti ljósmyndir teknar úr sjónvarpsþáttaröðinni Lífsháska með frétt um frönsku farþegaþotuna sem hrapaði í Atlantshafið. Myndirnar sýndu fólk með súrefnisgrímur um borð í flugvél og farþega sem sogast út um gat á skrokki flugvélar.
Sjónvarpsstöðin fékk þessar myndir sendar með tölvupósti þar sem því var haldið fram að myndirnar hefðu fundist á minniskubbi myndavélar sem fannst í braki flugvélarinnar og var eigandi vélarinnar nafngreindur sem brasilíski leikarinn Paulo Muller.
Lífsháski er sjónvarpsþáttaröð sem framleidd er í Bandaríkjunum af ABC sjónvarpsstöðinni og segir frá fórnarlömbum flugslyss sem eru strandaglópar á dularfullri eyju í Kyrrahafi.