Hæstiréttur Rússlands hefur ógilt sýknudóma, sem undirréttur kvað upp yfir fjórum mönnum, sem ákærður voru fyrir aðild að morðinu á blaðakonunni Önnu Politkovskaju árið 2006.
Rétturinn féllst á kröfu saksóknara, sem höfðu krafist þess að dómarnir yrðu ómerktir og málinu vísað heim í hérað til nýrrar rannsóknar.
Enginn mannanna fjögurra var ákærður fyrir að hafa skotið Politkovskaju eða fyrirskipað morðið á henni heldur fyrir að hafa tekið þátt í undirbúningnum. 2006.
Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt harðlega að ekki skuli hafa verið hægt að koma lögum yfir þá sem fyrirskipuðu morðið og myrtu Politkovskaju en hún var skotin til bana utan við íbúð sína í Moskvu í október árið 2006. Blaðakonan hafði í skrifum sínum gagnrýnt rússnesk stjórnvöld harðlega.