Fjórtán ára stúlka sem lifði af flugslysið í morgun hefur verið lögð inn á spítala á Kómoreyjum. Ástand hennar er ekki talið alvarlegt.
„Unga stúlkan sem er fjórtán ára hefur verið lögð inn á El Maarouf sjúkrahúsið. Okkur er sagt að ástand hennar valdi ekki áhyggjum," sagði fulltrúi Rauða krossins í samtali við fréttastofuna AFP.
Stúlkan er sú eina sem fundist hefur á lífi úr flugslysinu. Fjölmargir heilbrigðisstarfsmenn á Kómoreyjum höfðu áður sagt að fimm ára drengur hefði fundist sömuleiðis.
Flugvélin sem var af gerðinni Airbus A310 var frá Jemen. Hún fórst nálægt Kómoreyjum á Indlandshafi í morgun.