Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill tryggja að allir vinnustaðir verði reyklausir, þar með taldir vöruflutningabílar. Búist er við að vörubílstjórar efni til háværra mótmæla.
Tillaga framkvæmdastjórnarinnar verður rædd í Evrópuráðinu í haust, að því er segir á fréttavef Jyllands-Posten. Aðildarlöndin hafa frest til ársins 2012 til þess að innleiða reglurnar og ef til vill breyta þeim.