Þrettán lík og brak, sem rakið er til þess er flugvél Yemenia flugfélagsins fórst, hefur fundist á tansanískri eyju. Líkin fundust á strönd Mafia eyju. Hafin er rannsókn á líkunum.
Airbus A310 flugvél Yemenia flugfélagsins hrapaði í hafið 30. júní þegar hún var á leið til lendingar á Moroni flugvelli á Comoro eyjum suðaustur af Tansaníu. Um borð voru 153 og var 12 ára stúlka sú eina sem lifði af flugslysið.