Rúmlega hundrað vegfarendur réðust á kínverskan mann og börðu hann eftir að maðurinn hótaði að henda tveggja ára dóttur sinni út um glugga á áttundu hæð fjölbýlishúss í borginni Chengdu í Sichuan-héraði. Þetta kemur fram á fréttavef Sky.
Maðurinn Hu Binjun, sem er 34 ára, hélt dóttur sinni á hvolfi og veifaði henni út um glugga eftir að hafa rifist við eiginkonu sínum um meinta fíkniefnanotkun hans.Þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn skildi maðurinn barnið eftir hangandi á hvolfi á gluggasyllu en fór sjálfur inn íbúðina.
Slökkviliðsmönnum tókst að halda manninum uppteknum inni í íbúðinni á meðan félagi þeirra seig af níundi hæð niður á þá áttundu þar sem hann náði að grípa barnið áður en það féll.
Maðurinn reyndi síðan sjálfur að stökkva út um gluggann en slökkviliðsmönnum tókst að koma í veg fyrir það.
Hópur fólks, sem fylgst hafði með atburðunum af jörðu niðri, réðst á manninn er hann kom út úr húsinu í fylgd lögreglu. Ekki hafa verið veittar upplýsingar um það hversu illa hann er slasaður eftir barsmíðarnar.