Josef „Tuusi“ Mozfeldt, forseti grænlenska þingsins og formaður Inatsisartut, hefur kallað forsætisnefndina saman til að gera henni grein fyrir ásökunum á hendur sér um að hafa haft hass í fórum sínum. Hann neitar að draga sig í hlé meðan lögregla rannsakar málið, eins og Siumut hefur krafist.
Fundur forsætisnefndarinnar verður haldinn í dag, að sögn grænlenska útvarpsins. Málið kom upp þegar flutningamenn voru að flytja búslóð þingforsetans í nýjan embættisbústað hans. Þeir segjast hafa fundið hassklump í íbúð Josefs og afhentu lögreglunni klumpinn.
Þingforsetinn kveðst ekki kannast við klumpinn og segir að hann tilheyri sér ekki. Hann kveðst ekki vita hvernig á því stendur að hassið fannst í íbúðinni. Motzfeldt telur að klumpinum hafi verið plantað í íbúð sína. Þetta sé pólitískt samsæri gegn sér. Hann segir að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem hann verður fyrir pólitískum ofsóknum.
Josef Motzfeldt kveðst ekki vera viss um hver standi að baki meintu samsæri og ætla að bíða eftir niðurstöðu úr rannsókn lögreglunnar.
Þingflokkur Atassut, hins stjórnarandstöðuflokksins, lýst þeirri skoðun að láta eigi alla þingmenn á grænlenska landsþinginu gagnast undir fíkniefnapróf.