Seldi dóttur sína í vændi

Fyrrum stjórnandi vændishúss í Berlín var í dag dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa neytt dóttur sína í vændi þegar hún var fjórtán ára. Var honum gert að greiða 14 þúsund evrur í skaðabætur til dóttur sinnar sem nú er nítján ára að aldri.

Maðurinn, sem er 65 ára að aldri, tók dóttur sína í nokkur skipti í makaskiptaklúbba (swinger clubs) þar sem stúlkan var neydd til þess að taka þátt í afbrigðilegu kynlífi meðal annars að vera bundin á kross og hýdd. Fékk faðirinn greitt fyrir stúlkuna. Hann setti einnig inn á netið klámmyndir af stúlkunni sem flutti til hans eftir að hafa eytt barnæskunni á heimilum fyrir börn.

Faðirinn játaði fyrir rétti að hafa tekið dóttur sína með í kynlífsklúbba en neitaði því að hafa neytt hana til fararinnar. Heldur hafi hún ólm viljað koma með honum og hann hafi ekki getað stöðvað hana.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert