Lögreglan í Sundsvall í Svíþjóð var í nótt sem leið kölluð til eftir að bíll keyrði út af veginum og hafnaði ofan í skurði, að því er fram kemur í Aftonbladet. Þegar lögreglan kom á staðinn fann hún Volkswagen Golf smábíl, með níu ungmennum.
Ungmennin 9 höfðu yfirgefið partý á föstudagskvöldið og tróðu sér öll inn í sama bílinn til að komast heim. Í skarpri beygju var bílstjórinn ekki nógu vakandi og bíllinn endaði í skurði. Flest ungmennin voru ekki í bílbelti og bílstjórinn hefur verið ákærður fyrir að aka undir áhrifum áfengis.
Ungmennin voru öll flutt á sjúkrahús en sem betur fer slasaðist ekkert ungmennanna þrátt fyrir þetta ótrúlega gáleysi.