Ein er sú starfsgrein sem ekki á jafngreiðan aðgang að stuðningi frá ríkinu í kreppunni og það er vændi. Í Þýskalandi hefur vændi verið löglegt frá árinu 2002 en þar hefur orði töluverður samdráttur eins og víða annars staðar.
Yfirvöld í Baden-Württemberg beita sér nú fyrir því að stöðva ný tilboð sem vændishús hafa auglýst í kjölfar kreppunnar í tilraun til að auka viðskiptin. Þar býðst kúnnum nú að borga eina fasta greiðslu fyrir ótakmarkaða kynlífsþjónustu í heilan dag. Þeir borga þannig 70 evru aðgangsgjald en fá í staðinn, eins og vændishúsin auglýsa það, „kynlíf með öllum konum, eins lengi og þú vilt, eins oft og þú vilt“ frá kl. 10 á morgnanna til 16 í eftirmiðdaginn. Á kvöldin hækkar aðgangseyririnn í 100 evrur.
Þessi nýja verðskrá er afar umdeild og eru yfirvöld í Baden-Württemberg þeirrar skoðunar að hún brjóti á mannlegri reisn vændiskvennanna. Der Spiegel hefur eftir dómsmálaráðherranum Ulrich Goll að lagalega sé grundvöllur fyrir því að yfirvöld hafi afskipti af fyrirkomulaginu. Innanríkisráðherrann Heribert Rech hefur sömuleiðis sagt að verðlagið gefi til kynna að verið sé að misnota konurnar sem þar vinna.
Patricia Floreiu, yfirmaður vændishúsanna „Pussy Club“ vísar gagnrýninni á bug og heldur því fram að flestir kúnnar fari hvort eð er eftir tvö skipti og enga kvennanna séu þvingaðar til að starfa samkvæmt nýju skilmálunum. „Þetta laðar einfaldlega að fleiri kúnna,“ hefur Deutsche Welle eftir Floreiu. „Það getur eiginlega enginn „gert það“ oftar en tvisvar, þannig að aðgangseyririnn gengur að mestu bara upp í fría bjórinn.“
Um 400.000 vændishús eru skráð starfrækt í Þýskalandi.