British Airways hefur ákveðið að kyrrsetja tuttugu og tvær farþegaþotur úr flota sínum á næstkomandi vetri og fækka flugleiðum eftir að tölur um taprekstur félagsins hljóðuðu upp á 31 milljarð íslenskra króna á síðasta árfjórðungi.
Breski fréttavefurinn Sky News segir að yfirmaður flugfélagsins viðurkenni að flugfélagið berjist nú í bökkum og að þessi aðgerð sé liður í að stemma stigu við taprekstrinum.
Í tilkynningu frá flugfélaginu kemur fram að markaðurinn sýni þess engin merki að hann sé á leið upp úr þeirri lægð sem hann er í.