Franssave skekur franskan landbúnað

Bruno le Maire með blaðamönnum eftir fund sinn með bændum …
Bruno le Maire með blaðamönnum eftir fund sinn með bændum á þriðjudag. Reuters

Ekki eru nema sex vikur frá því að hann tók við erfiðasta embætti í frönskum stjórnmálum að fyrir liggur að hinn öflugi landbúnaðarþrýstihópur landsins er búinn að eyðileggja sumarið fyrir landbúnaðarráðherranum, Bruno le Maire.

Á sama tíma og obbinn af frönsku stjórnmálastéttinni, með ofvirkan forsetann, Nicolas Sarkozy, í broddi fylkingar hefur yfirgefið París til að slappa af á ströndinni eða í sumarhúsum, svitnar þessi fertugi fyrrum starfsmaður utanríkisþjónustunnar á skrifstofu sinni.

Á borði hans hvílir ógurlegur reikningur - Brüssel hefur fyrirskipað París að neyða ávaxta- og grænmetisbændur landsins til að endurgreiða þriðjung af milljarði evra sem séu „ólöglegar“ niðurgreiðslur.

Le Maire má nú sitja undir því að vera sakaður um - að minnsta kosti í augum fulltrúa þessa stærsta landbúnaðargeira Evrópu - að bregðast þeirri frumskyldu sinni að berjast fyrir styrkjum frá ríki og Evrópu þeim til handa.

Franskir bændur fá nú þegar mest allra út úr hinni sameiginlegu landbúnaðarstefnu ESB, en milli áranna 1992 og 2002 fengu ávaxta- og grænmetisræktendur einnig ríkulegar niðurgreiðslur frá franska ríkinu.

Framkvæmdastjórn ESB hefur nú lýst þessar niðurgreiðslur ólöglegar - þar sem þær séu ranglátar gagnvart framleiðendum í öðrum samkeppnislöndum innan sambandsins - og hefur Frakklandi verið veittur frestur fram til 29. september nk. til að gera grein fyrir því hvernig eigi að fá franska bændur til að endurgreiða þessa umframstyrki.

Franskir bændur ætlast til þess að landbúnaðarráðherrann hverju sinni taki sér stöðu við þeirra hlið í slagnum við Brüsselveldið, svo að le Maire olli umtalsverðu uppnámi sl. mánudag þegar hann sagði í blaðaviðtali: „Við þurfum að hefja aðgerðir til að fá endurgreiðslur frá bændum“.

Með vöxtum mun endurgreiðslan á niðurgreiðslunum nema um 500 milljónum evra (Icesavesamningurinn er tæpir 4 milljarðar evra), fjárhæð sem bændur segja að muni reka þá í gjaldþrot og þeir verði komnir upp á náð og miskunn Spánverja og Portúgala sem eru með lægri framleiðslukostnað.

Borgum ekki“

Fyrirsjáanlega brugðust þeir ókvæða við ummælum ráðherrans, og hafa hótað víðtækum mótmælum og uppþotum ef þeim verður gert að endurgreiða. Áður hafa þeir mótmælt með því að setja upp vegatálma og tonnum af landbúnaðarúrgangi verið sturtað á tröppur stjórnarbygginga.

„Við borgum ekki“, hafa frönsku bændasamtökin tilkynnt.

Í Brüssel er því aftur á móti haldið fram að frönsku niðurgreiðslurnar hafi átt að vera skammtímaaðgerð til að vernda bændur fyrir tilteknum uppskerubresti en verið síðan fest í sessi og orðið í reynd ótímabundin uppspretta tekna fyrir þarlenda bændur.

Þessum niðurgreiðslum hefur nú verið hætt en eftir stendur endurgreiðslureikningurinn.

Talsmaður framkvæmdastjórnar ESB segir engan vafa leika á því að niðurgreiðslurnar hafi verið  ólöglegar. Erfitt geti orðið að ná þessum endurgreiðslum frá bændum enda liggi höfuðábyrgðin hjá þeim aðilum sem fundu upp kerfið

"En vinsamlega gerið framkvæmdastjórnina ekki að sökudólg vegna aðstæðna sem ekki urðu til hér í Brüssel.“

Le Maire þurfti snúa úr sumarleyfi sínu og eiga fund með forustumönnum bænda sl. þriðjudag, þar sem hann hét þeim því að aðstoða við að afla fjár og fresta endurgreiðslunni meðan skýrsla yrði unnin um málið.

Hann lagði einnig kapp á að koma því á framfæri að hann hefði „fullan stuðning“ bæði Sarkozy og Francios Fillon, forsætisráðherra, til að slá á gagnrýni úr ýmsum áttum.

Lionnel Luca, þingmaður og flokksbróðir Sarkozy sagði: „Það er ekki landbúnaðarráðherrans að beygja sig fyrir Brüsselbákninu.“

Félagi hans Jacques Le Guen bætti um betur: „Ef menn eru ráðherrar landbúnaðarmála eiga menn að nálgast málin í þeim anda að gæta hagmuna bænda.“

Stjórnarandstaðan brást líka skjótt við. „Það er ekki hægt að lýsa því bara yfir sisvona við fólk sem á fyrir í miklum erfiðleikum: „Þið þurfið að endurgreiða 500 milljónir evra,“ sagði varaformaður Sósíalista, Genevieve Gaillard.

Og Jean Glavany, fyrrum landbúnaðarráðherra sósíalista sagði: „Hann var ráðherra Evrópumála, og vill þess vegna vera evrópskri en allir aðrir. Þetta var fljótræði.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert