Þýskur barnaníðingur gaf sig fram

Maðurinn sem þýska alríkislögreglan leitar vegna kynferðisofbeldis gagnvart börnum
Maðurinn sem þýska alríkislögreglan leitar vegna kynferðisofbeldis gagnvart börnum

Barnaníðingur sem þýska lögreglan leitaði gaf sig fram síðdegis í gær. Lögreglan birti myndir af manninum, íbúðinni þar sem hann framdi glæpi sína auk raddsýna. Maðurinn gaf sig í kjölfarið fram en neitaði að gefa upp persónuupplýsingar við fyrstu yfirheyrslur. Hann verður áfram yfirheyrður í dag.

Maðurinn er grunaður um glæpi af ýmsum toga auk kynferðislegs ofbeldis gegn börnum. Hann verður að öllum líkindum ákærður fyrir framleiðslu barnakláms og dreifingu þess.

Lögregla fann 42 myndskeið á vefnum þar sem maðurinn beitir fimm til sjö ára pilta hrottalegu kynferðislegu ofbeldi og líkamlegu í einhverjum tilvikum. Níu drengir sáust á myndskeiðunum sem áætlað er að séu frá 2006. Maðurinn er talinn vera þýskur og heyrast piltarnir kalla hann Christof.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert