Rússnesk áhöfn flutningaskipsins Actic Sea er fundin, að sögn rússneska varnarmálaráðherrans Anatoly Sedyukov og hefur verið flutt um borð í rússneskt herskip. Heilsast áhöfninni vel.
Talið hefur verið að Arctic Sea hafi verið rænt og hefur ekkert spurst til áhafnarinnar frá rétt fyrir mánaðamótin síðustu. Orðrómur var upp fyrir helgi að sést hefði til skipsins við eina Grænhöfðaeyjanna en fékkst ekki staðfest.
Í morgun sást hins vegar aftur til skipsins út af Grænhöfðaeyjum og sagði varnarmálaráðherrann eftir fund með Medvedev, forseta, að allir í áhöfninni væru á lífi, við góða heilsu og væru ekki í haldi, en frekari upplýsingar voru ekki gefnar um atvik málsins.