Embættismenn í Pakistan segja að lík tuttugu og tveggja meintra uppreisnarmanna hafi fundist í Swat-dalnum í gær.
Fregnir herma að lík hafi farið að finnast á svæðinu fyrir nokkrum vikum. Embættismenn segja að 18 lík hafi t.d. fundist í héraðinu í síðustu viku.
Íbúar á svæðinu segja að pakistanskar öryggissveitir hafi drepið uppreisnarmenn án dóms og laga í áhlaupi sínu gegn talibönum.
Talsmenn hersins og lögreglunnar hafa neitað þessum ásökunum. Þeir segja að íbúarnir hafi myrt uppreisnarmennina í hefndarskyni.
Mannréttindasamtök í Pakistan segja að fréttir af slíkum aftökum séu áreiðanlegar.