Margir áhrifamenn við útförina

Meðal þeirra sem eru við útför Edwards Kennedy öldungardeildarþingmanns eru …
Meðal þeirra sem eru við útför Edwards Kennedy öldungardeildarþingmanns eru Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og kona hans, Hillary Clinton, utanríkisráðherra, George W. Bush, fyrrverandi forseti og kona hans Laura, Barack Obama Bandaríkjaforseti og Michelle Obama, forsetafrú, Joseph Biden varaforseti og Jill kona hans og Jimmy Carter fyrrverandi forseti og Rosalynn kona hans. BRIAN SNYDER

Barack Obama forseti Bandaríkjanna og þrír fyrrverandi Bandaríkjaforsetar voru á meðal margra áhrifamanna og kvenna í bandarísku þjóðlífi sem kom til útfarar Edwards Kennedy í Boston. Kennedy verður jarðsettur síðar í dag við hlið bræðra sinna Johns og Roberts í Arlington þjóðargrafreitnum.

Útför Edwards Kennedy öldungardeildarþingmanns hófst í morgun í Boston í kaþólskri kirkju sem er kennd við Vora frú eilífrar hjálpar (Our Lady of Perpetual Help). Að sögn AFP fréttastofunnar voru mættir til athafnarinnar helstu áhrifamenn fyrir framan og aftan tjöldin í bandarísku þjóðlífi. Þeirra á meðal flestir þingmenn Bandaríkjaþings. Reiknað var með að George W. Bush, Bill Clinton og Jimmy Carter fyrrverandi Bandaríkjaforsetar kæmu til útfararinnar.

Barack Obama forseti Bandaríkjanna átti að flytja minningarorð um Edward Kennedy, sem var höfuð þekktustu fjölskyldu stjórnmálamanna í Bandaríkjunum. Veðrið var ekki upp á sitt besta í Boston, rok og rigning, en það aftraði ekki fjölda fólks frá að koma að kirkjunni til að votta öldungardeildarþingmanninum látna virðingu sína. 

Að útförinni lokinni verður kista Edwards Kennedy flutt til Washington þar sem hún verður jarðsett í Arlington þjóðargrafreitnum. Þar hvíla bræður Edwards, John og Robert, sem báðir féllu fyrir morðingjahendi.

Líkvaka var haldin að írskum hætti síðdegis á föstudag og sóttu hana ættingjar og vinir Kennedy fjölskyldunnar. Kista Edwards Kennedy hafði þá staðið í bókasafni sem kennt er við John F. Kennedy bróður hans. Um 50 þúsund manns komu þangað að veita öldungardeildarþingmanninum virðingu sína og votta samúð. 

Patrick J. Kennedy fulltrúadeildarþingmaður fylgdi móður sinni Vicki Kennedy til …
Patrick J. Kennedy fulltrúadeildarþingmaður fylgdi móður sinni Vicki Kennedy til útfararinnar í The Basilica of Our Lady of Perpetual Help í Boston Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert