William Hague, talsmaður breskra íhaldsmanna í utanríkismálum, hefur lýst því yfir að kúvending Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, varðandi stuðning bresku stjórnarinnar við kröfu aðstandenda fórnarlamba ÍRA á hendur Líbýumönnum sé viðurkenning þess að breska stjórnin hafi ekki veitt fjölskyldum fórnarlambanna viðeigandi stuðning til þessa. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
„Bresk yfirvöld hefðu átt að veita þeim stuðning að eigin frumkvæði en ekki vegna þrýstings frá almenningi," segir hann. „Gordon Brown og sú stjórn sem hann leiðir hafa fyrir löngu misst allan siðferðislegan trúverðugleika."
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið að verða við beiðni um að breska stjórnin beitti sér fyrir því að Líbíumenn greiddu fjölskyldum fórnarlamba sprengjutilræða Írska lýðveldishersins (IRA) í Bretlandi skaðabætur.
Brown neitaði að verða við beiðninni í bréfi sem hann skrifaði lögfræðingi fjölskyldnanna fyrir tæpu ári. Í bréfinu neitaði hann því að viðskiptahagsmunir væru „meginástæða“ þess að hann vildi ekki beita sér fyrir skaðabótunum. Hann tók þó fram að það þjónaði hagsmunum Breta að halda áfram samstarfi við Líbýumenn, meðal annars á sviði viðskipta og í baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi.
Bréfinu var lekið í fjölmiðla um helgina og í kjölfar þess varð Brown loks við beiðninni um að stjórnin beitti sér fyrir því að fjölskyldurnar fengju skaðabætur frá Líbýumönnum.
Líbíumenn eru sakaðir um að hafa séð IRA fyrir sprengiefnum sem notuð voru í mannskæðum árásum í Bretlandi.
Stjórn Browns sætir nú vaxandi gagnrýni fyrir að hafa beitt sér fyrir því að Líbýumaður, sem var dæmdur fyrir Lockerbie-tilræðið, yrði leystur úr haldi í Skotlandi og framseldur til heimalandsins. Stjórnin er sökuð um að hafa gert það til að tryggja Bretum mikilvæga viðskiptasamninga við Líbýumenn.